Andrés Helgi Valgarðsson

Andrés Helgi Valgarðsson

Stundum er ég aðeins of harðorður á hina og þessa hluti, en þá bið ég fólk bara að muna að yfirleitt meina ég það nú ekki illa.

Ég hef alltaf litið á mig sem svona frekar hægri-sinnaðan miðjumann í stjórnmálum. Endaði yfirleitt á að kjósa D, þrátt fyrir fólkið sem þar er á lista stundum, aðallega vegna þess að ég var þeim minnst ósammála þeim um ýmis mál. Það er bersýnilega liðin tíð, og mér líður eiginlega bara illa yfir því að hafa kosið þá í fortíðinni. Maður hélt að þeir vissu hvað þeir væru að gera.

Helst myndi ég vilja sjá nýjan flokk á hægri-væng íslenskra stjórnmála.

Auðvitað er maður alltaf viss félagshyggjumaður, þrátt fyrir allt, varla hægt að búa á Íslandi öðruvísi en að trúa á velferðarkerfið í einhverri mynd. En ég held samt að markaðsöflin séu besta leiðin til að nýta hugvit og vinnusemi mannlegs samfélags. En það þarf samt að vera ríkisstjórn sem leiðréttir markaðsbresti. (t.d. með því að niðurgreiða sjúkrakostnað og skólagjöld og með því að hafa yfirstjórn yfir hlutum eins og fiskveiðum (þó núverandi kvótakerfi þurfi amk smá snurfusun)) og til að sjá fyrir vissri þjónustu sem er ekki á hættandi að setja í einkarekstur, eins og t.d. löggæslu og félagsþjónustu.

 

Mér þykja sumir hlutir fáránlegir, t.d. kynjakvótar, það að Ísland skuli hafa þjóðkirkju, verndarstefna í viðskiptum (sem glöggt má finna í ýmsu formi á Íslandi), hvernig sumir af alvarlegustu glæpum sem til eru skuli varla vera meira en nokkurra mánaða fangelsisvistar virði, fólk sem heldur að við höfum efni á því að stunda engan iðnað, fólk sem heldur að við getum komist upp með að einblína bara á álver, stjörnuspár og dulspeki hverskonar, og svo mætti lengi telja.

 

ú já, fólk sem heldur að þróunarkenningin sé bara vitleysa fer alveg einstaklega í taugarnar á mér.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Andrés Helgi Valgarðsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband