Ekki eru það bara Múslimar sem eru hörundssárir.

Ég verð að viðurkenna að þetta kemur soldið flatt upp á mig.

Hélt alltaf að Vesturlandabúar almennt, og Íslendingar sérstaklega kynnu að taka gríni. Við erum einmitt nýbúin að sitja undir umræðu um hvað það sé skrítið hvað múslimar hoppuðu upp á nef sér út af nokkrum myndum af spámanninum. Við hér erum svo vön því að mega segja hvað sem við viljum, þartil það fer að kallast rógburður. Sumir verða kannski móðgaðir, eða finnst sér ofboðið, en almennt vita menn samt að um saklaust grín er að ræða í svona tilfellum.

Hvernig er það annars, á fólki ekki að finnast að það megi gera grín að rannsóknarréttinum? Ætla íslenskir Kaþólikkar virkilega að taka þann pól að þeir ætli að taka til sín gagnrýni á gamla rannsóknarréttinn?

 Í þeirra sporum myndi ég sko setja sem mesta fjarlægð milli þess sem Kaþólska kirkjan er í dag, og þess sem hún gerði á miðöldum. Þeir ættu að fordæma þessa atburði, taka þátt í því að grínast með það hvað þessir menn voru lokaðir, hatursfullir og heimskir.

 Ekki verja þá og taka til sín gagnrýni á þá.


mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband