Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Fáránlegt en satt...

En þósvo Vigdís hafi ekki verið forseti síðustu 12 árin, þá er hún enn mun meira sameiningartákn þjóðarinnar en Ólafur verður nokkurn tíma. Mér finnst hún hegða sér meira eins og forseti og vera betri fulltrúi okkar í alla staði.

  Á svona stundum þurfum við þess háttar fólki að halda sem allir Íslendingar geta borið virðingu fyrir og sem geta sýnt þá ímynd út á við sem við teljum að endurspegli okkur.

Forsetaembættið er vissulega ekki valdamikið, en í þá hluti sem það er þó gagnlegt, þá er Vigdís að gegna því betur þessa stundina en sá sem á að vera að gera það.

Það er gott að vita af henni þarna.


mbl.is Vigdís talar til Breta 1. des.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vil Þorvald Gylfason ekki lengur sem seðlabankastjóra.

Ég vil hann sem forsætisráðherra.

Hann kom alveg einstaklega vel fyrir á borgarafundinum í kvöld. Hann hefur bæði skilning á málefnunum, þá þekkingu sem er nauðsynleg, og þesslags hreinskilni og heiðarleika sem við getum treyst.

Þetta er ekki bara af því að hann kenndi mér í eina önn í fyrra. Þó reyndar hafi hann verið alveg frábær Þjóðhagfræðikennari þá líka.

Þetta var alveg frábær fundur. Bæði málefnalegur og kurteis. Og álit mitt á Össuri Skarphéðinssyni óx töluvert. 

Og þó ég hafi að vissu leiti samúð með stöðu ríkisstjórnarmanna, þá vaða þau í villu ef þau halda að þeir sem mættu á þennan fund hafi bara verið fulltrúar hins háværa minnihluta sem er hvorteðer alltaf óánægður. Ef þeir halda að þetta séu bara þeir sem eru hvorteðer alltaf á móti sjálfstæðisflokknum sem sjá sér nú lag.

Hver sem þekkir mig getur sagt ykkur að þegar ég er farinn að mæta á mótmæli, og farinn að krefjast nýrrar ríkisstjórnar og nýs seðlabankastjóra, þá er það skýrt dæmi um að það sé komið töluvert lengra en það.

Ég hef sagt áður að ég vilji ekki fara strax í kosningar...en ég myndi styðja stjórnarslit, ef einhver sem hægt er að treysta, eins og t.d. Þorvaldur Gylfason, myndi fá umboð til að mynda ópólitíska utanþingsstjórn til að stýra málum í eins og hálft ár, en þá yrði kosið.


mbl.is „Þetta er þjóðin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig í ósköpunum stendur á því

Að okkur dettur einu sinni í hug að treysta fjölmiðlum sem eru í eigu sömu mannanna og eiga mestu skuldirnar og bera mestu ábyrgðinna annars vegar, og eru reknir af ríkinu sem átti að hafa yfirsýn og halda aftur af þeim, en brást algjörlega, hins vegar?

Það er eins og ágætur maður sagði í ræðu á mótmælafundi um daginn, erfitt að taka afstöðu gegn einstaka aðillum, því þá lendir maður í liði með öðrum sem maður vill kannski líka taka afstöðu gegn.

Ég er hjartanlega sammála Davíð Oddssyni um margt í ræðu hans. Það hvernig bankakerfið var rekið var fáránlegt. Það er fáránlegt og út í hött hvað sumir af þessum hlutum gengu út fyrir allan þjófabálk.

En mér finnst samt að stjórn Seðlabankans þurfi að víkja, og Davíð með. Hávaxtastefnan var stór partur af vandamálinu. Hún gerði það of freistandi, og of gróðvænlegt, að taka gríðarstór lán.

Það var engu að síður bara röng og illa upplýst stefnuákvörðun. Ekki beinlínis glæpsamlegt athæfi, eða fáránlegur sofandaháttur.

Fjármálaeftirlitið gerði töluvert meiri skyssur, Ríkisstjórnin gerði töluvert meiri skyssur.

Við skulum ekki kaupa áróður stöðvar 2 sem vill telja okkur trú um að þetta sé allt bara Davíð að kenna, eða allt bara ríkisstjórninni að kenna.

Þeir bera vissulega ábyrgð. En þeir bara hana sannarlega ekki einir.

Ég verð ekki sáttur fyrr en við erum kominn með nýja Ríkisstjórn, helst með nýjum flokkum, eða flokkum sem hafa verið gjörsamlega endurmannaðir frá grunni. Fyrr en við erum kominn með nýtt Fjármálaeftirlit, nýjan Seðlabanka, og helst eitthvað endurskipulögð.

Ég verð ekki sáttur fyrr en við erum komin með óháða fjölmiðla. Eða að minnsta kosti einn óháðan fjölmiðil fjármagnaðan af ríkinu, án þess að lúta beinni stjórn ríkisins, sem þarf ekki að beygja sig undir vilja auglýsenda eða hugsa um nokkurn annan pól í umræðunni en Sannleikann. Tökum BBC sem fyrirmynd.

Fyrr en þessir menn sem fengu einhvern veginn ótakmörkuð lán, sem blésu út fyrirtæki á pappírum með kaupum og sölum fram og til baka, sem lögðu mannorð íslendinga í rúst með athæfi sínu, hafa verið rannsakaðir ofan í kjölinn og vonandi saksóttir.
mbl.is Fréttaskýring: Vígreif varnarræða seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband